Sterkar Strandir úthluta styrkjum

Verkefnið Sterkar Strandir hefur úthlutað styrkjum til 15 verkefna sem koma til framkvæmdar á árinu 2023 en 24 umsóknir bárust.

Alls voru að þessu sinni til úthlutunar kr. 10.500.000. en heildarfjárhæð styrkumsókna nam kr. 43.658.388.

Allt voru þetta umsóknir sem féllu vel að verkefninu Sterkar Strandir en eins og gefur að skilja þá var ekki til fjármagn til að úthluta til allra.

Styrkþegar, og verkefni þeirra, eru eftirfarandi:

Nafn umsækjandaHeiti umsóknarStyrkupphæð
Galdur Brugghús ehfNý framleiðslulína2.300.000
Skíðafélag StrandamannaÚtivistarparadís á Ströndum undir forystu Skíðafélags Strandamanna1.500.000
Röfn FriðriksdóttirFótaaðgerðastofa1.200.000
Strandagaldur sesEndurhönnun á Galdrasýningunni1.000.000
ÓBH útgerðSjóstangveiði frá Hólmavík750.000
Golfklúbbur HólmavíkurUppbygging golfvallar – annar áfangi500.000
Leikfélag HólmavíkurLeiklistanámskeið fyrir börn450.000
Leikfélag HólmavíkurLeikrit í fullri lengd400.000
Sauðfjársetur á Ströndum sesVottað og viðurkennt framleiðslueldhús400.000
Sauðfjársetur á Ströndum sesViðburðadagskrá Sauðfjársetursins 2023400.000
Christina van Deventer og Bragi Þór Valssontónfræði.is – 2. þrep400.000
Rannsóknasetur HÍ á Ströndum – ÞjóðfræðistofaBúnaður til kvikmyndagerðar400.000
Fine Foods Íslandica ehfDry processing for small food producers300.000
Christina van DeventerMyndskreyting barnabókarinnar Jax250.000
Magnea Dröfn HlynsdóttirHeilsurækt í Strandabyggð250.000
DEILA