LANDSMÓT UMFÍ 50+

Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman. Mótið hefur farið fram árlega síðan 2011.

Mótið er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri.  Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í íþróttafélag, allir geta tekið þátt og á sínum forsendum.

Keppnisgreinar á mótinu eru: Boccía, bridds, frjálsar íþróttir, golf, hestaíþróttir, göngufótbolti, körfubolti (3:3), pílukast, pútt, pönnukökubakstur, ringó, skák, stígvélakast, sund og fleirra.

Mótið verður haldið í Stykkishólmi dagana 23. – 25. júní 2023 í samstarfi við Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu og Sveitarfélagið Stykkishólm. 

DEILA