Kynning á fræðslusjóðum

Fimmtudaginn 2. mars mun Kristín Njálsdóttir, framkvæmdastjóri Landsmenntar, Sveitamenntar, Ríkismenntar og Sjómenntar, kynna fræðslusjóðina og aðra fræðslusjóði atvinnulífsins.

Kynntir verða möguleikar fyrirtækja, sveitarfélaga og ríkisstofnana á styrkjum og endurgreiðslu vegna fræðslu starfsmanna. 

Verkalýðsfélag Vestfirðing og Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur eru bæði aðilar að þessum sjóðum.

Fulltrúar fyrirtækja og stofnana sem sjá um endurmenntun starfsmanna sem eru í þessum stéttarfélögum eru hvattir til að koma og kynna sér hvaða möguleikar eru í boði á styrkjum og endurgreiðslu fyrir fræðslumál starfsmanna.

Þarna liggja mörg ónýtt tækifæri!

Fundurinn verður haldinn í Bryggjusal Edinborgarhússins og hefst kl. 12:00. Á fundinum verður boðið upp á súpu og brauð,  aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

DEILA