Jón á Gróustöðum látinn

Jón Friðriksson á Gróustöðum lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíð þann 6. mars. Frá þessu er sagt á Reykhólavefnum

Jón fæddist í Hólum 8. nóv. 1927, foreldrar hans voru Friðrik Magnússon og Daníelína Gróa Björnsdóttir.

 Jón kvæntist árið 1957 Þuríði Sumarliðadóttur á Gróustöðum og bjuggu þau þar síðan. Þuríður lést árið 2017.

Jón hélt heimili og sá um sig sjálfur að mestu, þar til fyrir fáeinum vikum að hann fór á Barmahlíð. Hann hélt skýrri hugsun og æðruleysi til síðasta dags.

Útför Jóns verður frá Garpsdalskirkju, föstudaginn 17. mars kl. 13.00.

DEILA