Bónus með lægsta verð á matvöru í könnun ASÍ

Bónus var með lægsta meðalverð á matvöru í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var 28. mars.

Verð í Bónus var að meðaltali 4% frá lægsta verði og verð í Krónunni 8%. Fjarðarkaup var 13% frá lægsta verði, Nettó 15% og Kjörbúðin og Hagkaup 22%.

Heimkaup var með hæsta meðalverð sem var að meðaltali 36% hærra en lægsta verð en verð í Iceland var 35% frá lægsta verði.

Yfir 40% munur var á hæsta og lægsta verði á helmingi varanna í könnuninni eða á 73 vörum af 142.

Þar af var yfir 60% verðmunur á 47 vörum.

Sem dæmi má nefna 101% verðmun á kílóverði af ódýrasta samlokubrauði sem fékkst í verslununum, 60% verðmun á frosinni nautalund, 48% verðmun á kjúklingastrimlum og 166% verðmun á lægsta kílóverði af rauðkáli.

ASÍ tekur fram að  aðeins sé um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Nánar má lesa um verðkönnunina á heimasíðu Alþýðusambandsins.

DEILA