Bætt umferðaröryggi á Íslandi

Ísland hefur bætt stöðu sína í umferðaröryggi samkvæmt nýjum bráðabirgðatölum Evrópusambandsins yfir fjölda látinna í umferðinni miðað við höfðatölu í ríkjum Evrópu.

Þar er Ísland í þriðja sæti á eftir Norðmönnum og Svíum með fæst banaslys árið 2022.

Samkvæmt meðaltali áranna 2018-2022 er Ísland í fjórða sæti yfir þær þjóðir þar sem fæstir látast í umferðinni miðað við höfðatölu. Aðeins Norðmenn, Svíar og Bretar standa sig betur á fimm ára tímabilinu.

Þar sem fjöldi slysa á Íslandi er breytilegur milli ára hefur þótt rétt að tengja markmið við fimm ára meðaltal í samanburði við aðrar Evrópuþjóðir. Ef næsta fimm ára tímabil á undan er skoðað var Ísland í 9. sæti.

Fjölmargir þættir stuðla að þessari jákvæðu þróun; ökutæki eru orðin öruggari, vegir betri og ökumenn standa sig betur. Fræðsla og forvarnir, ekki hvað síst til erlendra ökumanna, hafa skilað sér vel sem og sömuleiðis hvatning um að við bætum hegðun okkar í umferðinni.

DEILA