Verkefnadrifinn verkefnastjóra vantar í Vesturbyggð

Ráðhús Vesturbyggðar.

Vest­ur­byggð auglýsir eftir metn­að­ar­fullum og verk­efna­drifnum einstak­lingi í starf verk­efna­stjóra samfé­lags­upp­bygg­ingar.

Starfið er fjöl­breytt og felur í sér störf þvert á öll svið sveit­ar­fé­lagsins og náið samstarf með stjórn­endum þes

Meginviðfangsefni starfsins er vinna að stefnumótun, innleiðingu hennar og framkvæmd í sveitarfélaginu. Verkefnin varða m.a. atvinnuþróun og innviðauppbyggingu. Verkefnastjóri vinnur með stjórnendum að framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar. Um er að ræða spennandi framtíðarstarf í skemmtilegu og lifandi starfsumhverfi.

Leitað er eftir einstaklingi með leiðtogahæfni, sem hefur tileinkað sér sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og býr yfir ríkum og góðum samskiptahæfileikum og þjónustulund.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Rík og góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Reynsla af verkefnastjórnun er æskileg
  • Rík krafa um frumkvæði og framkvæmdagleði
  • Sjálfstæði í störfum og góð skipulagshæfni
  • Jákvæðni og aðlögunarhæfni
  • Góð tölvufærni og þekking á samfélagsmiðlum

Helstu verkefni

  • Vinna með bæjarstjórn og starfsfólki að stefnumörkun sveitarfélagsins
  • Verkefnastjórn uppbyggingarverkefna á sviði framkvæmda
  • Vinna með sveitarfélaginu og hagaðilum að nýsköpun
  • Upplýsingamiðlun og kynningar á verkefnum sveitarfélagsins
  • Samskipti við ýmsa hagaðila þar á meðal atvinnurekendur, íbúa og stjórnvöld
  • Vinna við gerð styrkumsókna
DEILA