Vegfylling komin yfir Þorskafjörð

Á Reykhólavefnum er sagt frá því að um helgina hafi vegfyllingin yfir Þorskafjörð náð landi, vestanverðu við fjörðinn.

Vegurinn kemur upp í fjöruna niður undan svonefndum Þórisstaðastapa, sem er nokkuð þekkt örnefni við núverandi veg.

Þegar vegurinn var endurbyggður, fyrir rúmlega 35 árum, stóð til að sprengja niður Stapann og nota efnið í veginn. Vegna mjög ákveðinna andmæla landeigenda og fleiri, var hætt við það. Margir fullyrtu  að í Stapanum byggju álfar og það myndi hafa vondar afleiðingar að hrófla við honum.

Þó að fyllingin nái orðið yfir fjörðinn er samt tæplega 1 og ½  ár þangað til vegurinn verður opnaður. Sett verður farg á fyllinguna, eins og gert var austan við brúna, þ.e. hún er miklu hærri en endanleg veghæð verður, en það er gert til að hraða sigi á fyllingunni sem er mest fyrst en jafnar sig svo.

Verktakarnir frá Suðurverk h.f. eru um þessar mundir að moka undan brúnni, en hún var byggð á „þurru“ og efnið þaðan er notað í vegfyllinguna vestan við brúna. Brúin sjálf er að mestu leyti tilbúin.

DEILA