Þjálfunarnámskeið í náttúruvernd fyrir 60+

Umhverfisstofnun tekur þátt í áhugaverðu ERASMUS+ verkefni sem kallast Grey4Green.

Grey4Green er alþjóðlegt samstarfsverkefni sem hófst á þessu ári og markmið þess er að þróa sjálfboðaliðaverkefni í náttúruvernd meðal fólks sem er eldra en 60 ára til að stuðla að félags-, menntunar- og persónulegum vexti.

Umhverfisstofnun tekur þátt í þessu verkefni ásamt aðilum frá Danmörku, Portúgal, Frakklandi og Kýpur sem hafa reynslu og þekkingu hvert á sínu sérsviði. 

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar (á ensku) um verkefnið á þessari vefsíðu: https://grey4green.eu/about/

Fyrsta skref verkefnisins er þjálfunarnámskeið sem verður haldið í Kýpur fyrir starfsmenn og kennara sem vinna með eldri borgurum og að umhverfismálum. 

Gert er ráð fyrir að fleiri en 20 manns taki þátt í námskeiðinu. Þetta verður frábært tækifæri til að hitta mismunandi evrópska hagsmunaaðila og fá tækifæri til að skiptast á hugmyndum um evrópsk verkefni (umhverfismál, fullorðinsfræðslu og sjálfboðaliðastarf).

Í ljósi ofangreindra upplýsinga viljum við bjóða fulltrúum t.d. stofnanna eða samtaka að taka þátt í þessu námskeiði sem haldið verður á ensku.

Umhverfisstofnun mun greiða kostnað vegna ferða, gistingar og fæðis fyrir dagana 8. til 13. maí (8. og 13. maí eru ferðadagar) að hámarki 250.000 kr á mann sem er ERASMUS+ styrkur vegna þessa verkefnis. 

DEILA