Skýrsla um lagareldi á Íslandi kynnt á morgun

Matvælaráðuneytið samdi síðastliðið sumar við alþjóðlega ráðgjafafyrirtækið Boston Consulting Group um gerð skýrslu um stöðu og framtíð lagareldis á Íslandi.

Lagareldi er yfirheiti yfir sjókvía-, land-, þörunga- og úthafseldi.

Ráðgjafafyrirtækið hefur nú lokið störfum og mun kynna helstu niðurstöður skýrslunnar á fundi á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, þriðjudaginn 28. febrúar kl. 13.30.

Skýrslan gerir ítarlega úttekt á stöðu lagareldis á Íslandi ásamt framtíðarmöguleikum og áskorunum greinarinnar. Niðurstöður skýrslunnar munu nýtast við stefnumótun fiskeldis á Íslandi til framtíðar. Tekið var mið af umhverfismálum, verðmætasköpun og regluverki.

Til samræmis við stjórnarsáttmála var áhersla lögð á að kortleggja tækifæri til sjálfbærs vaxtar greinarinnar með vísindalega þekkingu að leiðarljósi.

Gerð var samanburðargreining við þau lönd sem stunda lagareldi ásamt úttekt á mögulegum mótvægisaðgerðum vegna umhverfisáhrifa af hinni ýmsu starfsemi, þ.m.t. sjókvíaeldis.
Fundurinn verður opinn almenningi en jafnframt verður hægt að fylgjast með honum í streymi.

DEILA