Ný tækni við vöktun fiskeldis í sjókvíum

Matís og RORUM (Rannsóknir og ráðgjöf í umhverfis- og byggðamálum) hafa sameinað sérþekkingu sína til að þróa nýja tækni við umhverfisvöktun fiskeldis í sjókvíum.

Markmið verkefnisins er að þróa örugga, ódýra og hraðvirka aðferð til að meta ástand botndýrasamfélaga á eldissvæðum með erfðafræðilegri aðferð.

Aðferðin mun einfalda og flýta ákvarðanatöku um lengd hvíldartíma eldissvæða og byggja þannig lengd hvíldartíma á raunverulegum gögnum um ástand lífríkis á hverjum tíma. Þetta er ekki síst mikilvægt í ljósi þess að eftirlitsstofnanir þurfa að vera vel upplýstar um ástand á eldissvæðum og miklir hagsmunir eru fyrir eldisfyrirtækin að nýta eldissvæði á sjálfbæran hátt.

Rannsóknir RORUM sýna að ákveðnar tegundir, eða hópar tegunda, einkenna mismunandi ástand undir og nærri fiskeldiskvíar. Í verkefninu eru valdar 30 tegundir hryggleysingja valdar sem eru einkennandi fyrir mismunandi ástand sjávarbotns og DNA raðir í hvatbergenum þeirra raðgreindar, en hvatberagen eru einstök fyrir hverja tegund.

DNA raðirnar eru vistaðar í gagnagrunni til tegundagreiningar á óþekktum botnsýnum og þjónar því gagnagrunnurinn mikilvægu hlutverki fyrir vöktun og rannsóknir.

Þekking, reynsla og gagnagrunnur um botndýr í íslenskum fjörðum, er grunnurinn að samstarf Matís og RORUM í verkefninu og sem mun skila af sér þessari nýju tækni.

Niðurstöður munu nýtast beint við vöktun fiskeldis og rannsóknum almennt á lífríki íslenskra fjarða

DEILA