Grunnskólabörn – Varðliðar umhverfisins

Varðliðar umhverfisins, verkefnasamkeppni grunnskólabarna í 5. til 10 bekk er nú hafin í 16. sinn. Skilafrestur verkefna er 20. mars 2023.

Samkeppnin er hvatning fyrir nemendur og kennara til að huga markvisst að umhverfismálum og gott tækifæri til að koma á framfæri athyglisverðum verkefnum tengdum umhverfismálum sem unnin hafa verið í skólanum á skólaárinu.

Viðfangsefni verkefnanna og umfang þeirra eru opin og frjáls, en krafa er gerð um að verkefnin taki á sjálfbærni og umhverfismálum í víðum skilningi.

Úrvinnsla verkefnanna og lokaskil eru engum takmörkum háð og bæði fjölbreytileika og sköpunargleði er fagnað.

Verkefni fyrri ára hafa m.a. verið ljósmyndir, kannanir, samvinnuverkefni, ritgerðir, textílverkefni, ljóð, bækur, spil, veggspjöld, bæklingar, vefverkefni, leikrit, myndbönd og hljóðverk svo eitthvað sé nefnt.

Að keppninni standa umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Landvernd og Miðstöð útivistar og útináms. Sem fyrr segir er skilafrestur verkefna til 20. mars 2023 og skal senda þau á netfangið urn@urn.is eða í bréfpósti á umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík, merkt ,,Varðliðar umhverfisins”.

Þriggja manna valnefnd skipuð fulltrúum þeirra sem standa að keppninni velur úr innsendum verkefnum og útnefnir Varðliða umhverfisins. Veitt verða viðurkenningarskjöl fyrir öll innsend verkefni og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra útnefnir Varðliða umhverfisins á athöfn sem haldin er í tengslum við Dag umhverfisins 25. apríl. 

DEILA