Efla á sjúkrahúsþjónustu í dreifbýli -Starfshópur skipaður

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur sett á fót verkefni sem miðar að því að tryggja nauðsynlega mönnun sérhæfðs starfsfólks sjúkrahúsanna í heilbrigðisumdæmum Vestfjarða og Austurlands. Meðal annars er stefnt að því að koma á samstarfi með formlegum samningum milli heilbrigðisstofnana í þessum umdæmum og Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Ráðherra hefur skipað starfshóp sem starfar undir verkefnaheitinu öflug sjúkrahúsþjónusta í dreifbýli og er ætlað að vinna tillögur um samvinnu og ýmsar aðgerðir til að halda úti nauðsynlegri bráðaþjónustu á fyrrnefndum svæðum.

Í verkefninu hafa Vestfirðir og Austurland sérstöðu með tilliti til reksturs heilbrigðisþjónustu vegna þess hve langt er í sérhæfðar bjargir. Vegna þessa verða til skoðunar lausnir sem einungis eru taldar eiga við í þessum heilbrigðisumdæmum og önnur svæði geta ekki gert tilkall til á sama hátt.

Áhersla verður lögð á að nýta til verkefnisins fjármagn sem er fyrir hendi hjá hlutaðeigandi stofnunum en þó er gert ráð fyrir að einhverjar tillögur gætu kallað á aukið fjármagn.

Meðal annars verður skoðað hvort unnt sé að leita eftir ýmsum styrkjum sem tengjast Byggðaáætlun eða sambærilegum verkefnum.

Starfshópinn skipa:

  • Tómas Þór Ágústsson, tilnefndur af Landspítala, formaður
  • Helga Harðardóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneytinu
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir, tilnefnd af Samtökum sveitarfélaga á Austfjörðum – Austurbrú
  • Þórkatla Soffía Ólafsdóttir, tilnefnd af Samtökum sveitarfélaga á Vestfjörðum – Vestfjarðarstofu
  • Óskar Örn Óskarsson, tilnefndur af Félagi sjúkrahúslækna
  • Lovísa Agnes Jónsdóttir, tilnefnd af embætti landlæknis
  • Guðjón Hauksson, tilnefndur af Heilbrigðisstofnun Austurlands
  • Gylfi Ólafsson, tilnefndur af Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
  • Ragnheiður Halldórsdóttir, tilnefnd af Sjúkrahúsinu á Akureyri
DEILA