Vegabréf á Mínum síðum á Ísland.is

Nú getur þú séð upplýsingar um vegabréfið þitt og barna í þinni forsjá undir skírteini á Mínum síðum á Ísland.is.

Þar birtast almennar upplýsingar eins og nafn, kyn, númer vegabréfs og gildistími þess. Þetta mun auðvelda fólki að nálgast upplýsingar úr sínu vegabréfi eða barna í sinni forsjá t.d. þegar bóka á flug. 

Áfram þarf að vera með vegabréfið sitt þegar ferðast er erlendis og ekki hægt að nota upplýsingarnar á Mínum síðum sem skilríki.

Síðar á árinu verður hægt að forskrá umsóknir um vegabréf og greiða fyrir inná Ísland.is áður en farið er í myndatöku hjá sýslumanni.

Einnig verður hægt að staðfesta forsjá með rafrænum hætti milli forsjáraðila. Í því felast aukin þægindi fyrir forsjáraðila sem búa t.d. í sitthvorum landshluta eða af öðrum ástæðum geta ekki báðir komið á umsóknarstað með barni sínu.

DEILA