Úrkoma og meðalhiti í Litlu-Ávík 2022

Hitamælaskýli í Litlu-Ávík.

Á vefnum litlihjalli.it.is birtir Jón G Guðjónsson gagnlegar upplýsingar um veðurfar. Nýlega voru birtar upplýsingar um meðalhita og úrkomu í Árneshreppi á árinu 2022.

Meðalhiti á veðurstöðinni í Litlu-Ávík fyrir árið 2022 eftir mánuðum. Meðalhitinn er reiknaður út af Veðurstofu Íslands og eru tölurnar úr Gagnabrunni Veðurstofu Íslands. Innan sviga er meðalhitinn frá 2021:

Janúar: -0,2 stig. (-1,1 stig.)

Febrúar: -1,3 stig. (+0,7 stig.)

Mars: +0,5 stig. (+1,1 stig.)

Apríl: +2,8stig. (+1,6 stig.)

 Maí : +3,7 stig. (+3,3 stig)

 Júní: +7,0 stig. (+7,7 stig.)

 Júlí: +8,7 stig. (+11,0 stig.)

 Ágúst: +8,8 stig. (+11,4 stig.)

September: +7,3 stig. (+7,9 stig.)

 Október: +4,1 stig. (+3,5 stig.)

 Nóvember: +4,0 stig. (+1,1 stig.)

 Desember: -1,7 stig. (+0,7 stig.)

Meðalhiti ársins 2022 er +3,6 stig. (2021 var hann +4,1 stig.)

Hitinn var hæstur í ágúst +8,8 stig. En í ágúst 2021 +11,4 stig. Kaldast er í desember -1,7 stig. En 2021 var kaldast í janúar -1,1 stig.

Heildar úrkoma fyrir veðurstöðina í Litlu-Ávík á Ströndum fyrir árið 2022, tekin saman af Veðurstofu Íslands og tekin hér úr Gagnabrunni Veðurstofunnar. En úrkoman er þessi eftir mánuðum og innan sviga er úrkoman frá árinu 2021.:

Janúar: 67,5 mm.(48,9 mm.)

Febrúar: 58,5 mm.(68,5 mm.)

Mars: 142,3 mm. (65,6 mm.)

Apríl: 34,2 mm. (44,3 mm.)

 Maí: 117,3 mm. (6,9 mm.)

Júní: 74,9 mm. (64,9 mm.)

Júlí: 42,6 mm. (44,3 mm.)

Ágúst: 74,7.mm. (43,7 mm.)

September: 45,4. mm. (188,6 mm.)

Október: 127,9.mm. (143,4 mm.)

Nóvember: 57,9 mm. (76,2 mm.)

Desember:  30,9 mm.  (38,9mm.)

Samtals úrkoma árið 2022 var 874,1 mm.

Úrkoman er dálítið meiri enn á árinu 2021 sem var 836,2 mm. Er úrkoman því 37,9 mm meiri en árið 2021. Úrkoman fer yfir hundrað millimetra í mars, maí og í október. Enn 2021 fer úrkoma yfir hundrað mm í  september og í október. Það er mjög sjaldgæft að úrkoma fari yfir þúsund mm á ársgrundvelli, en hefur skeð nokkrum sinnum.

DEILA