Tuðra

Tuðra er smávaxinn og slyttislegur fiskur með stóran haus og víðan kjaft alsettan nálhvössum tönnum á skoltum.

Augu eru smá. Bak- og raufaruggar eru allstóri og andspænis hvor öðrum aftarlega á fiskinum. Eyruggar eru í meðallagi stóri en kviðugga vantar. Sporður er stór.

Mest einkennandi fyrir tuðru er óhemjulöng “veiðstöng” á miðju enni og nær hún vel aftur fyrir bakugga. Neðri hluti þessarar stangar er allsterklegur og hrufóttur og á henni eru tvö eða þrjú pör grannra þráða. Um miðja stöng er eins konar hnúður eða þykkildi og þar klofnar stöngin í tvo hvíta anga sem teygjast aftur (eða fram) og mynda sennilega ljósfæri.

Ofan á haus og við rætur “veiðistangar” eru ljósir blettir sem einnig eru ljósfæri. Ljósir blettir eru líka á fremsta geisla bakugga og raufarugga, í efsta og neðsta geisla sporðblöðku sem og við efri og neðri rætur hennar.

Roð er þakið göddum á víð og dreif. Stærð getur orðið um 24 cm.

Af vefsíðunni hafogvatn.is

DEILA