Tálknafjörður- Hrafnadalsvegi tímabundið breytt í sleðabrekku

Ákveðið hefur verið að loka Hrafnadalsveginum á milli Bugatúns og Túngötu fyrir bílaumferð í nokkra daga.

Er þetta gert til að vegurinn nýtist sem sleðabrekka fyrir börn á öllum aldri.

Óvíst er hvað lokunin mun standa lengi, en í það minnsta yfir helgina og eitthvað inn á nýja viku eða á meðan aðstæður leyfa.

Vonandi nýta sem flest tækifærið og fara út að fara út og renna sér en um leið er fólk hvatt til að fara varlega.

DEILA