Niðurgreiðslu á pöntunarakstri á leigubílum í verkefninu A10-Flateyri er hafið

Leikskólinn Grænigarður Flateyri. Mynd: Ísafjarðarbær.

Tilraunaverkefni um almenningssamgöngur sem gengur undir nafninu A10-Flateyri er hafið.

Verkefnið er samstarf Ísafjarðarbæjar og Byggðastofnunar og snýst um niðurgreiðslu á pöntunarakstri á leigubílum.

Verkefnið mun standa til lok árs 2024, eða þar til fjármagn til verkefnisins er uppurið, og horft verður til reynslu af því sem fordæmisgefandi fyrir þjónustu við Suðureyri og Þingeyri.

Ef íbúar vilja ferðast á milli Flateyrar og Ísafjarðar á milli kl. 06:30 og 22 á kvöldin, þó ekki hálftíma fyrir eða eftir að strætóferðum lýkur, virkar pöntunarþjónustan svona:

1. Hringið fyrst í annan af neðangreindum bílstjórum og athugið hvort þeir geti farið í ferðina.

Björgvin Sveinson: 7894444
Sophus Magnússon: 8938355

2. Skráið upplýsingar um ferðina á skráningasíðu og fáið staðfestingu með tölvupósti til baka í símann.
3. Sýnið bílstjóra staðfestinguna þegar hann kemur.
4. Borgið startgjaldið.

Bílstjórinn sér svo um að rukka Ísafjarðarbæ um eftirstöðvar kostnaðar við ferðina.

DEILA