Fuglatalning um helgina

Fuglavernd hefur útbúið hjálparblað með myndum sem hægt að nálgast á fuglavernd.is

Árlega er Fuglavernd með talningu á garðfuglum yfir eina helgi og venjulega er um að ræða síðustu helgina í janúar.

Á heimasíðu Fuglaverndar segir að gott sé að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að hefja daglegar fóðurgjafir til að lokka að fugla.

Framkvæmd athugunarinnar er einföld, segir í tilkynningu Fuglaverndar en það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma yfir tiltekna helgi. Skrá hjá sér hvaða fugla viðkomandi sér og mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir, þ.e. þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir.

Fyrir börn og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í fuglaskoðun hefur Fuglavernd útbúið hjálparblað með myndum og er hægt að nálgast blaðið á  fuglavernd.is og þar er að nálgast frekari upplýsingar um verkefnið.

DEILA