FMS hf hefur ráðið Einar Guðmundsson sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins. Hann tekur við starfinu af Ragnari H. Kristjánssyni þann 31. janúar n.k.
Einar er fæddur og uppalinn í Bolungarvík og hefur víðtæka reynslu af sjávarútvegi.
Hann kemur til FMS úr starfi framkvæmdastjóra hjá Norðanfiski á Akranesi en þar áður var hann framkvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækisins Hábrúnar í Hnífsdal. Þar áður starfaði hann sem skipstjóri í áratug og rak útgerð ásamt fjölskyldu sinni í Bolungarvík.
Þá er hann útskrifaður viðskiptafræðingur úr Háskólanum á Bifröst. Einar er rúmlega fertugur að aldri og er búsettur í Garðabæ ásamt maka og þremur börnum.
Ragnar H. Kristjánsson lætur af störfum að eigin ósk eftir að hafa gegnt stöðu framkvæmdastjóra FMS í 22 ár, en hann hafði þar áður starfrækt fiskmarkað í Hafnarfirði í átta ár og því verið í fiskmarkaðsumhverfinu síðan 1992.