Það á ekki hringja í Neyðarlínuna til að fá upplýsingar um veður og færð

Ástand vega klukkan 13.34 í dag. Mynd af umferdin.is.

Mikið álag er á upplýsingasíma Vegagerðarinnar 1777, segir í tilkynningu frá stofnuninni, svo mikið að þegar fólk nær ekki í gegn bregður það á það ráð að hringa í Neyðarlínuna 112. Þar eru allar línur tepptar af fólki að spyrja um færð, veður og lokanir vega. 

Fólk er vinsamlega beðið um að hringja alls ekki í Neyðarlínuna til að spyrja að þessum hlutum.

Allar upplýsingar um lokanir vega og hugsanlegar opnanir er að finna á umferdin.is.

Umferðarþjónusta Vegagerðarinnar nær ekki að sinna öllum þeim fjölmörgu símtölum sem berast henni og því er fólk beðið um að fylgjast með á umferðarvef Vegagerðarinnar umferdin.is.

Þar birtast upplýsingar um leið og teknar eru ákvarðanir um opnun og lokun vega.

Aftur skal ítrekað: Ekki hringja í Neyðarlínuna til að fá upplýsingar um veður og færð! segir í tilkynningu frá Vegagerðinni

Hlekkur á upplýsingasíðu Vegagerðarinnar umferdin.is

DEILA