Sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða

List á Siglufirði

Innviðaráðherra auglýsir eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 vegna verkefna sem tengjast aðgerð C.1 Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða.

Landshlutasamtök sveitarfélaga geta í samstarfi við haghafa í hverjum landshluta sótt um framlög í samkeppnissjóð vegna verkefna sem nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans eða landshlutanum í heild.

Sérstök áhersla er lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf með gerð viðaukasamninga við sóknaráætlanir viðkomandi landshluta um tiltekin verkefni eftir forgangsröðun heimafólks. 

Veitt verður allt að 130 milljónum kr. fyrir árið 2023. 

Umsóknarfrestur er til miðnættis föstudagsins 20. janúar 2023.

DEILA