Mikill munur á verði bóka í verðkönnun ASÍ

Í nýrri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ á jólabókum var Bónus oftast með lægsta verðið, í 50 tilvikum en Forlagið næst oftast, í 25 tilvikum.

Penninn Eymundsson var oftast með hæsta verðið, í 43 tilvikum. Forlagið var með mesta úrvalið, 80 titla af 81 og Penninn Eymundsson með 79 titla.

Í Nettó voru engar verðmerkingar á bókum til staðar á sölustað og gat verðtökufulltrúi verðlagseftirlitsins því ekki tekið niður verð. Þetta samræmist ekki reglum Neytendastofu um verðmerkingar sem kveða á um að verðmerkja skuli vöru hvar sem hún er til sýnis og að auðvelt eigi að vera að sjá verð vöru og þjónustu á sölustað.


Neytendur ættu að hafa hugfast að verð á algengum bókatitlum breytast oft ört í verslunum á þessum árstíma.

Nánar um þetta á vef ASÍ

DEILA