Hjúskapur og skilnaðir

Af þeim 561 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í Þjóðskrá í ágústmánuði gengu 132 í hjúskap hjá sýslumanni eða 23,5%, 257 giftu sig í Þjóðkirkjunni eða 45,8% og 126 einstaklingar gengu í hjúskap í öðru trú- eða lífsskoðunarfélagi eða 22,5% og loks gengu 46 einstaklingar í hjúskap erlendis.

Fyrstu átta mánuði ársins gengu 3.055 einstaklingar í hjúskap sem er aukning frá síðasta ári en þá gegnu 2.748 einstaklingar í hjúskap.

Alls skildu 84 einstaklingar sem eru skráðir í Þjóðskrá í ágúst sl. Þar af gengu 81 frá lögskilnaði sínum hjá sýslumanni og 3 gengu frá lögskilnaði sínum fyrir dómi.

Hér má sjá lista yfir fjölda einstaklinga sem gengu í hjúskap og skildu á árunum 1990 til nóvember 2022. Vinsamlegast athugið að það eiga eftir að bætast við skráningar í september til nóvember og jafnvel fleiri mánuði. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðskrá Íslands

DEILA