Bókagjafir eru þessa dagana á leið í alla leik- og grunnskóla á Vestfjörðum, á vegum samtakanna Stöndum saman Vestfirðir .
Samtökin voru stofnuð árið 2016 með það í huga að standa saman að því að bæta samfélagið okkar eins og hægt er.
Í þetta sinn var ákveðið að safna fyrir bókagjöf í alla leik- og grunnskóla á Vestfjörðum, en það eru alls 13 leikskólar og 12 grunnskólar. Markmiðið er að allir skólar á Vestfjörðum fái fallegar jólabækur til að hægt sé að eiga góða jóla lestrarstund.
Samtökin hafa staðið fyrir tveimur söfnunum á þessu ári, annars vegar fyrir heyrnamælingartæki fyrir HVEST og hins vegar fyrir hjartastuðtækjum til nota á skíðasvæðinu á Ísafirði.