Alþingiskosningar 25. september 2021

Kosið var til Alþingis 25. september 2021. Við kosningarnar voru alls 254.586 á kjörskrá eða 69,0% landsmanna. Af þeim greiddu 203.898 atkvæði eða 80,1% kjósenda. Kosningaþátttaka kvenna var 81,5% en karla 78,7%.

Kosningaþátttakan var breytileg eftir aldri og var hún minni á meðal yngri en eldri kjósenda. Kosningaþátttakan var 83,0% á meðal einstaklinga sem engan erlendan bakgrunn hafa á meðan hún var 42,1% á meðal innflytjenda.

Við kosningarnar greiddu 47.696 manns atkvæði utan kjörfundar eða 23,4% kjósenda en sambærilegt hlutfall var 18,6% í kosningunum 2017.

Á Vestfjörðum þátttakan mest í Árneshreppi 92,5%, Strandabyggð 84,3%, Kaldrananeshreppi 84,1 og á Tálknafirði 83,4% en minnst á Reykhólum og í Vesturbyggð þar sem hún var 78,4% og í Bolungarvík 78,7%. Á Ísafirði var þátttakan 80,7% og 81,8% í Súðavík

Í fyrsta sinn síðan Hagstofa Íslands hóf miðlun kosningaskýrslna er nú gerð greining á bakgrunni þeirra sem tóku þátt í alþingiskosningunum 2021. Innflytjandi er einstaklingur sem fæddur er erlendis og á foreldra, afa og ömmur sem öll eru fædd erlendis.

DEILA