Tillaga að starfsleyfi Ævintýradalsins ehf vegna bleikjueldis í Heydal

Heydalur í Mjóafirði og laug Guðmundar góða.

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi vegna bleikjueldis Ævintýradalsins ehf. að Heydal í Súðavíkurhreppi.

Um er að ræða eldi með allt að 20 tonna lífmassa á hverjum tíma.

Að mati Umhverfisstofnunar eru helstu áhrif vegna eldisins losun næringarefna bæði á föstu formi og uppleystu.

Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í ferskvatn með þeirri hreinsun sem rekstaraðili hyggst notast við. Hægt er að endurskoða fyrirkomulag fráveitu frá eldinu og gera auknar kröfur bendi mælingar til að hreinsun sé ábótavant samkvæmt mælingum.

Athugasemdir skal senda Umhverfisstofnun og er frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 12. desember 2022.

DEILA