Tendrun jólatrjáa í Vesturbyggð

Íbúum Patreksfjarðar er boðið að koma og eiga notalega stund þegar kveikt verður á jólatrénu á Friðþjófstorgi í dag 30. nóvember kl. 16:30.

Boðið verður upp á heitt kakó og piparkökur og dansað verður í kringum jólatréð.

Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, mun kveikja á trénu við athöfnina.

Að lokinni dagskrá mun Vesturbyggð bjóða bæjarbúum í Skjaldborgarbíó að sjá teiknimyndina Strange World kl. 17:30.

Í gær þriðjudaginn 29. nóvember voru ljósin tendruð á jólaatrénu við Baldurshaga á Bíldudal.

DEILA