Skógrækt á hundavaði í Vísindaporti Háskólaseturs

Föstudaginn 4. nóvember flytur Sigríður Júlía fyrirlestur sem hún nefnir „Skógrækt á hundavaði“ í Vísindaporti Háskólaseturs Vestfjarða.

Þar fjallar hún um breytingar sem orðið hafa á skógum allt frá landnámi til dagsins í dag, upphaf skipulagðrar skógræktar á Íslandi, stofnanaumhverfi skógræktar og spáð í spilin varðandi framtíðina.

Sigríður Júlía Brynleifsdóttir hefur um árabil unnið að umhverfismálum og skógrækt, t.a.m. sem verkefnastjóri hjá Vesturlandsskógum, síðan sem héraðsfulltrúi Landgræðslu ríkisins á vesturlandi og Vestfjörðum og framkvæmdastjóri Vesturlandsskóga, en frá árinu 2016 sem sviðstjóri hjá Skógræktinni. Þar hefur hún m.a. stýrt ráðgjafarþjónustu stofnunarinnar og skógrækt á lögbýlum í samstarfi við skógarbændur. 

Sigríður Júlía hefur setið í framkvæmdaráði Skógræktarinnar frá stofnun hennar árið 2016. Einnig hefur hún kennt við Landbúnaðarháskóla Íslands, bæði í bændadeild og á háskólastigi. Í gegnum tíðina hefur Sigríður haldið fjölda erinda á fundum, málþingum og ráðstefnum auk þess hefur hún haldið námskeið á sviði umhverfismála og skógræktar og skrifað greinar í fagtímarit, bæði innlend og erlend. 

Sigríður Júlía er með mastersgráðu í í skógfræði við norska lífvísindaháskólann að Ási í Noregi (Universitetet for miljø og biovitenskap) og BS gráðu í landnýtingu frá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Vísindaportið er opið öllum og hefst stundvíslega klukkan 12:10 í kaffistofu Háskólaseturs Vestfjarða á 2. hæð.

DEILA