Alls skráðu 4.557 einstaklingar flutning innanlands í október til Þjóðskrár.
Þetta er fækkun frá síðasta mánuði um 1,9% þegar 4.647 einstaklingar skráðu flutning innanlands og einnig talsverð fækkun frá sama mánuði á síðasta ári en þá skráðu 4.925 einstaklingar flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.840 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.443 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 404 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 304 innan landshlutans og 93 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Vestfjörðum fluttu 103 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 68 innan landshlutans.