Ný bók: Álfadalur

Út er komin hjá bókaútgáfunni Sæmundi bókin Álfadalur eftir Guðrúnu Jónínu Magnúsdóttur

Í kynningu á bókinni segir að þetta sé sönn saga um kynferðisofbeldi, þöggun og afleiðingar þess.

Höfundur rekur sögu móður sinnar, Sigurbjargar Oddsdóttur frá Álfadal á Ingjaldssandi.

Þetta er saga harðrar lífsbaráttu, hroðalegrar grimmdar og lamandi meðvirkni svo lesandann rekur í rogastans.

En það er líka saga af ótrúlegri þrautseigju og viljastyrk konu sem tekst að lifa innihaldsríku lífi þrátt fyrir hörmuleg áföll.

DEILA