Matvælastofnun sektar Arnarlax um 120 milljónir

Höfuðstöðvar Arnarlax á Bíldudal. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Matvælastofnun hefur lagt stjórnvaldssekt á Arnarlax ehf. upp á kr. 120.000.000 fyrir að hafa brotið gegn skyldu um að tilkynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strokfiski.

Við slátrun úr sjókví 11 við Haganes í Arnarfirði í október síðastliðnum varð ljóst að fyrirtækið gat ekki gert grein fyrir afdrifum 81.564 laxa hið minnsta.

Alls hafði 132.976 löxum verið komið fyrir í kvínni í október 2020 og júlí 2021. Skráð afföll voru 33.097 fiskar en í október 2022, þegar slátrun var lokið úr kvínni, reyndist fjöldinn sem kom upp úr kvínni hins vegar vera aðeins 18.315 laxar.

Arnarlax tilkynnti í ágústlok 2021 að gat hefði fundist á umræddri sjókví. Þá voru viðbrögð fyrirtækisins í samræmi við kröfur sem gerðar eru þegar slíkir atburðir eiga sér stað.

Þegar tölur úr slátruninni í október sl. lágu fyrir og ljóst var að ekki var hægt að gera grein fyrir afdrifum rúmlega 80 þúsund laxa, hóf MAST strax rannsókn og krafði Arnarlax meðal annars um skýringar á misræmi í fóðurgjöf m.v. uppgefinn fjölda fiska í kvínni. Kom þá í ljós að veruleg frávik höfðu orðið í fóðurgjöf í kví 11 frá því í júní 2021, eða tveimur mánuðum áður en tilkynnt var um gat á kvínni síðastliðið sumar, sem hefðu átt að vekja sterkar grunsemdir fyrirtækisins um að eitthvað alvarlegt væri á seyði.

Matvælastofnun telur að um alvarlegt brot sé að ræða, bæði út frá umfangi og hættu fyrir villta nytjastofna og lífríki, sem og að um er ræða brot sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir með betri stjórn og innra eftirliti fyrirtækisins. Matvælastofnun telur aðgæsluleysi Arnarlax hafi verið vítavert og afleiðingar þess mjög alvarlegar. og hefur því ákveðið að sekta fyrirtækið um 120 milljónir kr.

DEILA