Mannamót verður í janúar

Búið að opna fyrir skráningar á Mannamót sem Markaðsstofur landshlutanna halda í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 19. janúar 2023 frá klukkan 12:00 til 17:00.

Mannamót er fjölmennasti viðburðurinn í íslenskri ferðaþjónustu þar sem hátt í þúsund gestir hafa mætt og sýnendur verið um 250 talsins.

Tilgangur Mannamóta er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustufólki sem staðsett er á höfuðborgarsvæðinu.

Þar er hægt að kynnast betur fólki í ferðaþjónustu og fjölmörgum fagaðilum sem koma á Mannamót.

DEILA