Greiða á desemberuppbót til atvinnuleitenda

Óskert desemberuppbót er 94.119 krónur. Atvinnuleitendur með börn á framfæri fá jafnframt sérstaka desemberuppbót fyrir hvert barn yngra en 18 ára.

Rétt á fullri desemberuppbót eiga þau sem staðfesta atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2022 og hafa verið að fullu tryggð innan atvinnuleysistryggingakerfisins í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2022. Greiðsla desemberuppbótar til þeirra sem eiga ekki fullan bótarétt innan atvinnuleysistryggingakerfisins reiknast í hlutfalli við rétt þeirra til atvinnuleysisbóta á árinu 2022 og fjölda mánaða sem viðkomandi hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Uppbótin verður þó aldrei lægri en sem nemur 23.530 krónum.

Uppbót vegna barns eða barna tekur engum skerðingum heldur nemur í öllum tilvikum sex prósentum af óskertri desemberuppbót eða 5.647 krónum með hverju barni.

Vinnumálastofnun mun greiða desemberuppbót til atvinnuleitenda eigi síðar en 15. desember næstkomand.

Það var Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, sem undirritaði reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda.

DEILA