Fundur ráðherra ferðamála með ferðaþjónustuaðilum á Vestfjörðum

Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra ferðamála heimsækir Vestfirði dagana 10.-11. nóvember.


Boðað er til opins fundar með ferðaþjónustuaðilum á Vestfjörðum ásamt framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar.

Fundurinn fer fram í húsi Vestfjarðastofu við Árnagötu 2-4 á Ísafirði kl. 14:30-16:00 á morgun fimmtudag. Fundurinn verður einnig sendur út í beinu streymi á Facebook-síðu viðburðarins.

Ferðaþjónustuaðilar á svæðinu eru hvattir til að mæta og taka þátt í samtalinu við ráðherra málaflokksins og Samtök ferðaþjónustunnar.

DEILA