Brátt verða jólaljósin tendruð í Ísafjarðarbæ

Ljósin verða tendruð á jólatrjám í Ísafjarðarbæ helgarnar 26.-27. nóvember og 3.-4. desember.

Dagskráin verður með hefðbundnu sniði á hverjum stað; ljúfir jólatónar, jólasveinar sem gleðja bæði börn og fullorðna og kakósala.

26. nóvember – Ísafjörður
15:00: Kakó- og torgsala 10. bekkjar Grunnskólans á Ísafirði.
15:45: Lúðrasveit TÍ leikur fjörug jólalög
16:00: Ljósin tendruð á jólatrénu á Silfurtorgi
Barnakór TÍ syngur.

27. nóvember – Suðureyri
Ljósin tendruð á jólatrénu á Suðureyri klukkan 16:00.
Söngtríó úr útibúi TÍ syngur.
Kvenfélagið Ársól stendur fyrir kakósölu.

3. desember – Þingeyri
Ljósin tendruð á jólatrénu á Þingeyri klukkan 16:00.
Leikskólabörn syngja.

4. desember – Flateyri
Ljósin tendruð á jólatrénu á Flateyri klukkan 16:00.
Börn úr Grunnskóla Önundarfjarðar syngja.
Að lokinni dagskrá verður opið á Vagninum þar sem hægt verður að kaupa kakó og vöfflur.

DEILA