Bók án endurgjalds

Á dögunum var gefin út rafbókin Landbúnaður liðinna tíma – búnaðarþættir úr Þingeyrarhreppi eftir Bjarna Guðmundsson á Hvanneyri. Bókina er aðgengileg á vefslóðinni www.issuu.com/bjgudm og þar má lesa hana án endurgjalds.

Bókin geymir nokkra þætti þar sem gerð er grein fyrir búskap í hreppnum á ýmsum tímum allt frá dögum Gísla Súrssonar í Haukadal til tuttugustu aldar búskapar með sögu Búnaðarfélags Þingeyrarhrepps.

Kafli er í bókinni um merkan búskap þorpsbúa á Þingeyri en kirkjustaðurinn Sandar og land hans varð búskaparland þeirra á fjórða áratug síðustu aldar. Þá er sagt frá gróðurrækt og búfjárrækt í sveitinni og ráðið í eldri búhætti með hliðsjón af örnefnum og minjum.

Margar þeirra hefur höfundur kannað en hann er fæddur og uppalin í sveitinni, á Kirkjubóli. Bókin er 152 bls og hana prýða margar ljósmyndir og teikningar.

DEILA