Auka á þorskkvótann í apríl segir framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda

Á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda sem haldinn var nýlega fjallaði Örn Pálsson framkvæmdastjóri um ástand þorskstofnsins.  Hann sagði að eftir skerðingu þrjú ár í röð væri komið að aukningu.   Ekki væri ástæða til að bíða til 1. september heldur ætti að bregðast strax við og auka leyfilegan heildarafla í apríl.

Í ræðu aðalfundinum sagði hann meðal annars:   „Í skýrslu Hafrannsóknastofnunar frá júlí sl. er boðað að skerðing aflaheimilda í þorski sé lokið að sinni.  Veiðistofn vaxi úr 1 070 þúsund tonnum í 1.124 þúsund tonn.  Eftir að hafa fylgst með aflabrögðum og heyrt frá sjómönnum um land allt er ég ekki í vafa um að haustrall Hafrannsóknastofnunar sem nú stendur yfir og marsrallið munu koma mjög vel út varðandi þorskinn.  

Verði sú raunin á, er ekki eftir neinu að bíða með að auka við þorskkvótann strax í apríl, ekki að bíða með það fram í september.  Við eigum að nýta okkur það góða ástand sem er á mörkuðum um þessar mundir og auka okkar hlutdeild þar.  Hér er um milljarða spursmál að ræða sem í raun þolir enga bið og því er vert fyrir matvælaráðherra að skoða þennan möguleika strax.“

DEILA