60% slökkviliða á landinu með gilda brunavarnaáætlun

Í frétt á vef Húsnæðis og mannvirkjastofnunar segir frá því að nú séu 60% slökkviliða í landinu með gilda brunavarnaáætlun.

Á síðustu mánuðum hefur HMS unnið markvisst að því að styðja slökkviliðin og sveitarfélögin við gerð brunavarnaáætlana en í heildina eru 34 slökkvilið starfandi í landinu sem starfa á vegum 64 sveitarfélaga.

Markmið brunavarnaáætlunar er að tryggja að slökkviliðs sé þannig mannað skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þær áhættur sem eru í sveitarfélaginu.

Á hverju starfssvæði slökkviliða skal liggja fyrir brunavarnaáætlun sem fengið hefur samþykki HMS og viðkomandi sveitarstjórnar. Slökkviliðsstjóri vinnur brunavarnaáætlun sem er öflugt verkfæri til að ná fram yfirsýn yfir starfsemi og ástand slökkviliða og hversu vel í stakk búið það er að takast við áhættur á sínu svæði.

DEILA