Vörðum leiðina saman með Innviðaráðuneytinu

Innviðaráðuneytið, í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, býður íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman.

Tilgangur samráðsfundanna er að gefa íbúum landsins og sveitarstjórnarfólki um land allt tækifæri til að hafa áhrif á stefnumótun í nokkrum helstu málaflokkum ráðuneytisins.

Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkunum. Meginviðfangsefni fundanna verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður fjallað um nýsamþykkta byggðaáætlun.

Öllum er velkomið að taka þátt í fjarfundunum milli kl. 15:00–17:00 á auglýstum fundardögum. Fundirnir verða haldnir í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams. Hægt er að skrá sig á vef fundaraðarinnar.

Þátttakendur fá síðan boð í tölvupósti til að tengja sig á fundina. Skráningu lýkur daginn fyrir hvern fund. 

Fundur fyrir Vestfirði verður haldinn 24. október.

DEILA