Samkaup og Þroskahjálp undirrita samstarfsyfirlýsingu

Sara Dögg verkefnisstjóri Þroskahjálpar og Finnbogi Örn Rúnarsson tóku þátt á fyrsta fræðsludegi jafnréttisfulltrúa Samkaupa.

Finnbogi deildi sinni sögu og gaf innsýn inn í sitt líf á vinnumarkaði og Sara Dögg hélt erindi um viðeigandi aðlögun á vinnustað.

Samkaup og Þroskahjálp hafa skrifað undir samstarfsyfirlýsingu um aukið aðgengi fatlaðra að vinnumarkaði og viðeigandi aðlögun í starfi og er þessi fræðsludagur hluti af því starfi.

Í tilkynningu frá Þroskahjálp segir að atvinnutækifæri fyrir fötluð ungmenni sé stórt og mikilvægt mál og á sama tíma og við fögnum því að eiga þetta mikilvæga samtal við Samkaup hvetjum við önnur fyrirtæki að feta þennan mikilvæga veg í átt að fjölbreytni í starfsmannahópum fyrirtækja og aðgengi fyrir öll að starfi við hæfi.

DEILA