Leggja grunn að fagháskólanámi í leikskólafræðum

Forsvarmenn þeirra stofnana og ráðuneyta sem koma að undirbúningi verkefnisins.

Verkefninu er ætlað að gera starfsfólki leikskóla sem ekki hefur lokið stúdentsprófi kleift að sækja fagháskólanám sem er að fullu metið inn í fimm ára leikskólakennaranám.

Háskóli Íslands þróar og skipuleggur fagháskólanám í leikskólafræðum og mun Menntavísindasvið skólans bera ábyrgð á framkvæmd verkefnisins. Nemendum stendur til boða að fá stuðning við ástund námsins frá starfsfólki háskólans, fræðslustofnunum í heimabyggð og viðkomandi sveitarfélagi.

Verkefnið er þarft en hér á landi er lægsta hlutfall menntaðra leikskólakennara meðal OECD-ríkja.

Verkefnið um fagháskólanám í leikskólafræðum hófst formlega árið 2018 með samvinnu Menntavísindasviðs HÍ, Háskólafélags Suðurlands, Félags leikskólakennara, Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og fleiri hagaðila sem hluti af átaki stjórnvalda til að efla tengsl háskóla og atvinnulífs. Nú hafa tveir hópar lokið náminu, einn í Árborg og annar á Suðurnesjum, með góðum árangri.

Námið er byggt upp með það að leiðarljósi að nemendur geti sinnt því samhliða starfi sínu á leikskólum. Þannig geta nemendur lokið 60 einingum á tveimur árum sem eru að fullu metnar ef sótt er um í bakkalárnám í leikskólakennarafræði að fagháskólanámi loknu.

Áætlað er að skráning í námið hefjist vorið 2023 og að síðan verði nýir hópar teknir inn annað hvert ár. Stefnt er að því að árið 2025 brautskráist allt að 100 nemendur, sem flestir myndu halda áfram í leikskólakennaranámi að fagháskólanámi loknu.

DEILA