Afli í september 121 þúsund tonn

Heildarafli í september 2022 var 121.091 tonn sem er 13,1% aukning frá september á síðasta ári.

Botnfiskafli var rúmlega 36 þúsund tonn sem er 14% aukning frá fyrra ári. Af botnfisktegundum var þorskaflinn um 20 þúsund tonn. Af uppsjávartegundum veiddust 82 þúsund tonn samanborið við tæp 73 þúsund tonn í september 2021.

Á tólf mánaða tímabili, frá október 2021 til september 2022, var landaður afli rúmlega 1,5 milljónir tonna sem er rúmlega 45% aukning frá fyrra fiskveiðiári. Þar af var uppsjávarafli rúmlega ein milljón tonna og botnfiskafli rúm 437 þúsund tonn.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu Hagstofunnar eru bráðabirgðatölur.

Búast má við að aflaverðmæti aukist mun meira þar sem verð á sjávarafurðum hefur farið hækkandi að undanförnu.

DEILA