Verslun með fé

Nú er tíminn þar sem helst er stunduð verslun með sauðfé og geitfé – í flestum tilfellum ásetningslömb.

Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að mikilvægt sé að hafa í huga að ákveðnar reglur gilda varðandi flutning sauðfjár bæði innan varnarhólfa og milli þeirra.

Reglur þessar eru settar til þess að hindra útbreiðslu sjúkdóma og ber riðuveikina þar hæst. Það er staðreynd að riðuveiki hefur einkum borist milli bæja með verslun með lifandi fé, sér í lagi hrúta.

Mikilvægt er að stunda ábyrgar sóttvarnir. Handþvottur og stígvélaþvottur er mjög mikilvægur þegar farið er á milli búa. Þrif og sótthreinsun flutningatækja sem notaður er til flutninga á fé er ekki síður mikilvægur.

Skrá skal alla flutninga og tryggja að hjarðbók gefi rétta mynd af stöðu hjarðarinnar og halda skal vel utan um sjúkdóma- og lyfjaskráningar.

Yfir varnarlínur má eingöngu flytja lömb frá líflambasölusvæðum með leyfi frá Matvælastofnun, sem sótt er um á heimasíðu stofnunarinnar og þar er einnig að finna upplýsingar um bæi sem hafa söluleyfi fyrir lömb eða kið.

DEILA