Tveir tankbílar keyra vatn til Suðureyrar

Enn hefur ekki tekist að finna lekann á vatnsleiðslunni á Suðureyri sem hefur valdið vatnsskorti síðan í sumar en þó hefur náðst að einangra frekar mögulega staðsetningu.

Gamla lögnin út í Staðardal er orðin mjög lúin og skilar bara hálfum afköstum. Verktaki stefnir á að klára að leggja nýja leiðslu á sunnudag eða mánudag 11.-12. september. Strax í kjölfarið verður farið í tengivinnu til að tengja nýju lögnina við vatnstankinn. Þangað til verða íbúar á Suðureyri að spara vatn eins og hægt er og gera má ráð fyrir því að truflun verði á vatnsþrýstingi eða jafnvel tímabundið vatnsleysi í einhverjum húsum hluta af þessum tíma. 

Á meðan beðið er eftir nýrri tengingu og að leki finnist verður haldið áfram að keyra vatni í tankinn frá Ísafirði.

Undanfarna daga hafa tveir tankbílar verið nýttir til þess og fara þeir margar ferðir á dag.

DEILA