Markaður fyrir greiðslumark í sauðfé og mjólk

Markaður fyrir greiðslumark í sauðfé verður haldinn í nóvember 2022.

Umsóknum um kaup og sölu greiðslumarks skal skila rafrænt á afurd.is. Opnað hefur verið fyrir umsóknir.

Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 1. nóvember.

Tilboðsmarkaður fyrir greiðslumark mjólkur verður haldinn 1. nóvember næstkomandi.

Að hámarki er hægt að óska eftir 50.000 lítrum til kaups á hverjum markaði, eða alls 150.000 lítrum árlega. Tilboðum um kaup og sölu greiðslumarks skal skila rafrænt á afurd.is. Tilboðsfrestur rennur út á miðnætti 10. október nk.

DEILA