Maríuerla fugl ársins 2022

Þetta árið kepptu sjö fuglategundir um titilinn Fugl ársins í keppni sem Fuglavernd stóð nú fyrir annað árið í röð. 

Fimm fuglanna höfðu kosningastjóra sem unnu ötult og óeigingjarnt kynningarstarf fyrir sína smávini. 

Maríuerlan kynnti sig þó sjálf með hlýlegri nærveru sinni um allt land og þurfti ekki talsmann til að sigra keppnina með yfirburðum og 21% atkvæða.

Í öðru og þriðja sæti lentu hinir ólíku en glæsilegu fuglar, himbrimi og auðnutittlingur, með 14% atkvæða hvor um sig. Alls kusu 2100 mannns um fugl ársins 2022.

DEILA