Kosningu á fugli ársins lýkur 12 september

Kosningu á fugli ársins lýkur 12. september og tilkynnt verður um Fugl ársins 2022 á Degi íslenskrar náttúru þann 16. september.

Með kosningu á Fugli ársins vill Fuglavernd vekja athygli á málefnum fugla.

Margar fuglategundir sækja hingað til lands vegna góðra og oft framúrskarandi aðstæðna til að ala unga sína en sumar þeirra eru í hættu vegna umsvifa mannsins, loftslagsbreytinga eða eyðingu búsvæða.

Einstaka fuglar njóta ákveðinna óvinsælda vegna lífshátta sinna og veitir ekki af tækifæri til að reyna að bæta ímynd sína.

Mest er þetta þó til gamans gert svona í lok sumars þegar horft er til baka yfir varptímabilið og á eftir farfuglunum okkar sem vonandi snúa á vetrarstöðvarnar með ungana sína og heim aftur næsta vor.

Hér koma myndir af þeim sjö fuglum sem eru í framboði í ár.

Auðnutittlingur
Himbrimi
Hrossagaukur
Hrafn
Jaðrakan
Kría
Maríuerla
DEILA