Haustfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun

Haustfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst mánudaginn 3. október næstkomandi. 

Boðið verður upp á nám á 1. 2. og 3. stigi menntunarinnar.  Námið gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar og þjálfarar sækja svo sérgreinaþátt námsins hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ eða með sambærilegum hætti. 

Skráningarfrestur er til mánudagsins 3. okóber og fer skráningin fram á Sportabler.

Nemendur velja rétt námskeið og ganga frá greiðslu námskeiðsgjaldsins í heimabanka.  Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Sportabler þurfa að búa til nýjan aðgang.

Allar frekari upplýsingar um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 

DEILA