Göngum í skólann

Meginmarkmið verkefnisins Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla, hvetja til aukinnar hreyfingar og fræða börn um ávinning reglulegrar hreyfingar.

Með þessu er ætlunin að hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna en hreyfing vinnur m.a. gegn lífstílstengdum sjúkdómum, stuðlar að streitulosun og betri sjálfsmynd. Einnig er markmiðið að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli. Til viðbótar, að draga úr umferð við skóla og stuðla að betra og hreinna lofti ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi.

Um leið er verið að stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf.

Verkefnið Göngum í skólann hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi.

Hér á landi fer skráning skóla mjög vel af stað og auðvelt er fyrir skóla að bætast í hópinn. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er 5. október.

Vegna birtu og veðuraðstæðna fer Göngum í skólann verkefnið fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 5. október.

Verkefnið Göngum í skólann var formlega sett í Melaskóla 7. september síðast liðinn, að viðstöddum góðum gestum.

Hér er hægt að sjá þá skóla sem hafa skráð sig til leiks.

DEILA